KUBB er einföld leið til að fá aðgang að hleðslu þegar þú ert á ferðinni. Þú leigir hleðslubanka úr KUBB stöð, tekur hann með þér og skilar honum síðan á KUBB stöð þegar þú þarft ekki lengur á honum að halda.
Finndu næstu KUBB stöð, skannaðu QR-kóðann á stöðinni og fylgdu leiðbeiningunum í KUBB appinu. Þegar leigan hefur verið staðfest losnar hleðslubanki úr stöðinni og þú getur byrjað að hlaða símann.
Það kostar 149 kr. að aflæsa KUBB og síðan 8 kr. fyrir hverja mínútu. Hámarksverð fyrsta sólarhringsins er 1.290 kr.
KUBB hleðslubankarnir eru með innbyggðum USB-C, Lightning og Micro-USB tengingum og henta því flestum algengum snjallsímum. Einnig er hægt að nota KUBB með ýmsum öðrum minni raftækjum sem nota þessar tengingar.
Hleðslutíminn fer eftir símanum, stærð rafhlöðunnar og stöðu hennar þegar hleðsla hefst. Flestir símar ná verulegri hleðslu á tiltölulega skömmum tíma, en 60 mínútur eru gott viðmið.
Finndu KUBB stöð með lausu hólfi og settu hleðslubankann inn í stöðina. Gakktu úr skugga um að hann læsist rétt í hólfið áður en þú ferð. Leigan lýkur þegar skilin hafa verið skráð.
Nei. Þú getur skilað KUBB á hvaða KUBB stöð sem er með laust hólf. Í appinu geturðu séð hvaða stöðvar eru nálægt þér og fundið hentugan stað til að skila hleðslubankanum.
Þegar hleðslubankinn hefur verið settur rétt í stöðina lýkur leigunni og staðfesting birtist í KUBB appinu. Ef leigan virðist enn vera virk skaltu ganga úr skugga um að bankinn hafi læst sig almennilega í hólfið.
Í KUBB appinu geturðu fylgst með virkri leigu í rauntíma. Þar sérðu bæði hversu lengi þú hefur verið með hleðslubankann og hvert núverandi leiguverð er.
Athugaðu fyrst hvort rétt hleðslusnúra sé tengd við símann og hvort hleðslubankinn sé virkur. Ef KUBB virkar ekki eðlilega skaltu skila honum á næstu KUBB stöð og hafa samband við okkur svo hægt sé að skoða málið.
Hámarksverð fyrsta sólarhringinn er 1.290 kr. Ef KUBB er ekki skilað innan 24 klukkustunda tekur næsta verðþrep við samkvæmt gjaldskrá. Eftir 24 klukkustundir er verðið 2.490 kr., eftir 48 klukkustundir 4.990 kr. og eftir 72 klukkustundir 9.990 kr. Eftir 72 tíma verður þú eigandi hleðslubankans.