Meira batterí. Minna vesen.
Flest þekkjum við augnablikið þegar rafhlaðan á símanum er að klárast á nákvæmlega versta tíma. Þú ert úti, á veitingastað, á viðburði eða einfaldlega á ferðinni og það er hvergi hentugt að hlaða.
Það var útgangspunkturinn að KUBB. Okkur langaði að gera hleðslu jafn auðvelt að nálgast og Wi-Fi, þjónustu sem er til staðar þegar þú þarft á henni að halda, án þess að þú þurfir að vera fastur við vegg eða innstungu.
Með KUBB geturðu leigt færanlegan hleðslubanka á KUBB stöð, tekið hann með þér og haldið áfram með daginn eða kvöldið á meðan síminn hleðst.
Þegar þú ert búinn skilarðu KUBB aftur á næstu stöð með lausu plássi. Þú þarft því ekki að fara aftur þangað sem leigan hófst, KUBB á að passa inn í ferðina þína, ekki öfugt.
Síminn er orðinn stór hluti af daglegu lífi. Þar eru greiðslur, samskipti, leiðsögn, miðar, bókanir og ótal annað sem við treystum á á hverjum degi.
Við teljum því að aðgangur að hleðslu eigi að vera einfaldur. Markmiðið með KUBB er að byggja upp net stöðva á stöðum þar sem fólk er þegar á ferðinni og gera það eðlilegt að geta gripið hleðslu þegar hennar er þörf.
Við erum að byggja upp KUBB með það að markmiði að þjónustan verði aðgengileg á veitingastöðum, börum, hótelum, verslunum, viðburðum og öðrum stöðum þar sem fólk þarf á hleðslu að halda.
Hugmyndin er einföld: Þú átt ekki að þurfa að hugsa um hleðslutækið þitt áður en þú ferð út. Ef rafhlaðan klárast, þá á KUBB að vera nálægt.
Við viljum gera hleðslu jafn sjálfsagða og aðgang að interneti. Með KUBB geturðu nálgast hleðslu þegar þú þarft á henni að halda, tekið hana með þér og haldið áfram með daginn. Markmiðið er að byggja upp sterkt net KUBB stöðva þar sem fólk er þegar á ferðinni, svo batteríslaus sími þurfi ekki lengur að stoppa þig.
Stofnandi KUBB
Hugmyndin að KUBB kviknaði eitt kvöld þegar ég var úti með vinum og síminn minn varð rafmagnslaus. Ég var ekki með hleðslutæki og áttaði mig fljótt á því hversu háður maður er símanum, ekki bara til að vera í sambandi við fólk, heldur líka til að panta far, greiða og einfaldlega komast í gegnum kvöldið.
Ég fór að leita að stað þar sem ég gæti hlaðið símann, en eini möguleikinn var að finna innstungu og skilja símann eftir þar á meðan hann myndi hlaðast.
Það augnablik fékk mig til að átta mig á því hversu algengt þetta vandamál er. Ég ákvað að búa til lausn sem myndi gera það að verkum að fólk þyrfti ekki lengur að hafa áhyggjur af því að verða batteríslaust þegar það er á ferðinni.
Þannig varð KUBB til. Að gera hleðslu einfaldari og aðgengilegri, hvar sem þú ert.
KUBB hleðslubankar og stöðvar eru hönnuð með öryggi í fyrirrúmi og uppfylla viðeigandi öryggis- og gæðakröfur.